Borgin: sundlaugum og listhúsum lokað

Öllum sundlaugum og menningarstofnunum Reykjavíkurborgar verður lokað klukkan 16:30 í dag vegna óveðursins sem spáð er á höfuðborgarsvæðinu seinnipartinn og í kvöld.

Í tilkynningu frá borginni segir að þetta eigi við um Borgarbókasafn – menningarhús, Borgarsögusafn Reykjavíkur ( Árbæjarsafn, Landnámssýninguna,Ljósmyndasafn og Sjóminjasafn) og Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn, Hafnarhús og Kjarvalsstaði.

Ylströndin er einnig lokuð.

Höfuðborgarstofa mun halda upplýsingamiðstöð ferðamanna í Aðalstræti opinni til klukkan 17.00 og hefur stillt saman strengi með Samtökum ferðaþjónustunnar og Landsbjörgu um upplýsingamiðlun til erlendra ferðamanna í borginni.

Þá hefur Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) sent út tilkynningu um að allar íþróttaæfingar falli niður frá og með kl. 15.00 í dag.

Foreldrar hafa verið beðnir um að sækja börn sín í skóla og frístundaheimili fyrir kl. 16:00 í dag.