Þó Dagur B. Eggertsson og Áslaug Friðriksdóttir séu ekki sammála um margt, eru þau sammála um að Reykjavíkurborg standi sig betur en nágrannasveitarfélögin hvað varðar lóðir til bygginga félagslegra íbúða. Þau kalla eftir að önnur sveitarfélög taki sig á, hvað þetta varðar.
Annað sem þau eru sammála um er, að fjárhagsstaða borgarinnar sé betri nú en lengi áður. Þau eru hinsvegar fjarri að vera sammála hvernig eigi að nýta þá stöðu. Á að lækka skatta á borgarbúa? Já , segir Áslaug, nei segir Dagur, allavega ekki strax.
Þau verða gestir Þjóðbrautar í kvöld. Þátturinn er á dagskrá klukkan 21:00 og Sigurjón M. Egilsson hefur umsjón með þætti kvöldsins.