Borgin: sorpstríð minni- og meirihlutans

Sjálfstæðismenn í borgarstjórn gagnrýna meirihluta Samfylkingarinnar, Besta flokksins, VG og Pírata fyrir að láta borgarbúa borga m,eira fyrir minni sorphirðu frá og með upphafi þessa árs; yfirvofandi sé sorpskandall í borginni þar sem draslið flói út af sorpgeynslum.

Sorp verður nú hirt á 14 daga fresti í stað tíu daga fresti og segir Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur að þá ákvörðun megi rekja til umhverfissjónarmiða. Fækka eigi ferðum sorphirðubíla um borgina á sama tíma og boðið sé upp á græna tunnu fyrir plast sem eigi að minnka sorp í almennum tunnum. Þá sé gjaldahækkun ekki meiri en svo að hún verði á pari við það sem þekkist í nágrannasveitarfélögum. Almennt sé verið að hvetja fólk til að flokka sorp betur en verið hefur og þjónusta borgarinnar miðist við það.

Sjálfstæðismenn í borginni segja augljóslega um skerta þjónustu við borgarbúa að ræða, auk þess sem gjödlin séu hækkuð í leiðinni. Minni þjónusta kosti nú meira. Þeir óttast að sorp flói út af sorpgeymslum borgarbúa, ekki síst í fjölbýlishúsum þar sem erfitt sé að fjölga tunnum í þröngum geymslum. Borgarbúar muni margir hverjir hafa af þessu mikinn ama og óþrif muni aukast. Þeir vilja skoða leiðir einkaframtaksins í sorphirðu til að fjölga valmöguleikum í þessum málaflokki, en hann er nú allur á hendi sveitarfélagsins.

Hjálmar Sveinsson segir þróunina hér sem annars staðar vera alla á einn veg; aukin flokkun kalli á fleiri en minni ílát sem séu sjaldnar tæmd en áðurog allt saman auki það umhverfisvitund borgarbúa sem eigi að reyna að minnka framleiðslu heimilisins á óendurvinnanlegum úrgangi.