Rekstur Reykjavíkurborgar á síðasta ári var ájkvæður sem nemur 11 milljörðum króna, en það er þremur milljörðum króna betri afkoma en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þetta kemur fram í ársreikningi Reykjavíkurborgar sem lagður var fram í borgarstjórn í dag.
Helstu ástæður þessa, að því er fram kemur í tilkynningu frá borginni, má rekja til lækkandi vaxtagjalda Orkuveitu Reykjavíkur vegna lækkunar skulda fyrirtækisins og hækkandi eignaverðs hjá Félagsbústöðum.
Niðurgreiðsla skulda samstæðunnar gengur vel, að því er borgaryfirvöld segja og er samkvæmt áætlun. Skuldsetningarhlutfall borgarinnar er 104%, en lögboðið viðmið eftirlitsnefndar um fjármál sveitarfélaga er 150%. Ef skuldir Orkuveitu Reykjavíkur eru taldar til skulda samstæðu borgarinnar hefur skuldahlutfallið lækkað úr 327% árið 2010 í 216%. Skuldir Orkuveitunnar eru því miklar en niðurgreiðsla þeirra gengur hratt, segir jafnframt í tilkynningunni. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar styrkist á milli ára og fer úr 40% í 43%. Arðsemi eigin fjár var 5,8% á síðasta ári.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir ýmislegt jákvætt í ársreikningi en um leið þurfi að vakta reksturinn þótt borgarsjóður standi vel. „Kjarasamningarnir voru dýrir og það sést í bókum borgarinnar. Það eru ýmis teikn á lofti í ytra umhverfinu sem við þurfum að vera á varðbergi gagnvart. Á heildina litið gengur reksturinn þó vel, skuldir eru að lækka, tekjur að aukast og þjónustan sömuleiðis,“ segir Dagur.