Píratar mælast því með hátt í fimmfalt meira fylgi en þeir fengu í kosningum. Samfylkingin mælist næststærst með 24,7% og myndi samkvæmt því tapa tæpum sjö prósentustigum frá kosningum. Sjálfstæðisflokkurinn dalar lítillega, fengi 23,4% atkvæða samkvæmt könnuninni sem er rúmlega tveimur prósentustigum minna en í borgarstjórnarkosningum.
Framsókn tekur mestu dýfuna, svo gott sem með brotlendingu, en fylgi hennar saman um nærfellt 60%, fer úr 10,7% í 4,4. Þar sem til stendur að fjölga borgarfulltrúum úr 15 í 23 myndi flokkurinn þó halda einum fulltrúa í borgarstjórn.
Vinstri-græn auka fylgi sitt úr 8,3% í ellefu. Fylgi Bjartrar framtíðar minnkar um helming samkvæmt könnuninni, mælist nú 8,1% en flokkurinn fékk 15,6% fyrir rúmu ári síðan.
Fylgi Pírata er mest meðal fólks undir 55 ára aldri, fylgi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eykst eftir því sem fólk verður eldra.
Samfylkingin, Björt framtíð, Vinstri-græn og Píratar mynduðu meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur eftir borgarstjórnarkosningar í fyrra. Þeir eru með níu af fimmtán borgarfulltrúum. Samkvæmt könnuninni fengju meirihlutaflokkarnir 17 af 23 sætum í borgarstjórn eftir kosningar en Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn og flugvallarvinir sex. Lögum samkvæmt verður að fjölga borgarfulltrúum í 23 til 31 miðað við íbúafjölda. Það hefði getað gerst í síðustu kosningum en þá var ákveðið að fresta því að fjölga borgarfulltrúum.
Svarhlutfall í könnuninni var 81,6%, en úrtakið var 1.877 manns. 8,7% sögðust skila auðu eða ekki kjósa.