Borgin borgaði 1,2 milljónir króna þrátt fyrir að samningur sagði annað

Á aðeins fimm árum hefur Reykjavíkurborg keypt þjónustu án rammasamninga og fárra útboða fyrir sjö milljarða króna. Þetta kom fram í þættinum 21, sem sýndur var á Hringbraut klukkan 21:00 síðastliðið fimmtudagskvöld. Borgin hefði getað sparað sér 1,5 milljarð hefðu rammasamningar verið virkir. Farið var ítarlega í saumana á málinu í þætti kvöldsins með borgarfulltrúum Pírata og Samfylkingarinnar.

Í skýrslu Innri endurskoðanda um verklegar framkvæmdir og innkaup hjá Reykjavíkurborg kemur fram að þrátt fyrir að samningar séu gerðir milli aðila er eftirlit með samningum mjög oft ábótavant. Kom í ljós að eftir skoðun Innri endurskoðanda á einum samninga að borgin hafi greitt 1,2 milljón króna að óþörfu. Í samningi borgarinnar og verkfræðistofuna VSÓ kom fram að allur akstur vegna verkefnisins væri innfalin í heildar verðinu.

Þrátt fyrir að þetta stæði í samningi sendi verkfræðistofan reikning fyrir akstrinum sem hljóðaði upp á 1,2 milljón króna. Var reikningurinn samþykktur af öllum aðilum innan borgarkerfisins, þrátt fyrir að samningar sögðu að ekki þyrfti að borga fyrir akstur.

Eftir að Innri endurskoðandi athugaði málið sagði Verkfræðistofan VSÓ að um væri að ræða mistök og leiðrétti þau, rúmum tveimur árum eftir að reikningurinn var sendur. 

Innri endurkoðandi segir að svo virðist sem kostnaðaráætlun um eftirlit sé til málamynda, því ætla mætti að þekking og reynsla á umfangi vinnu vegna eftirlits með framkvæmdum af þessari stærðargráðu, sem Sundhöllin var, sé til staðar.