Borgin aðstoðar 20 þúsund manns

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar veitir sjötta hverjum borgarbúa fjárhagssaðstoð með einum eða öðrum hætti á hverju ári ef marka má nýútkomna skýrslu um starfsemi sviðsins á síðasta ári.

Yfir tuttugu þúsund einstaklingar nýttu sér þjónustu  velferðarsviðs með einhverjum hætti á árinu 2014. Meðal þeirra voru tæplega níu þúsund sem fengu greiddar húsaleigubætur og yfir þrjú þúsund fengu félags- eða sálfræðirágjöf. Rösklega 4,600 borgarbúar nutu félagsþjónustu á borð við heimahjúrkun, yfir 4000 fengu beina fjárhagsaðstoð, tæplega 3000 börnum var veitt hjálp á einn eða annan hátt og 920 einstaklingar fengu sendan mat heim til sín daglega á síðasta ári svo nokkrar tölur séu gripnar af handahófi úr skýrslunni.

Á velferðarsviði fer fram mjög umfangsmikil starfssemi en  129 starfseiningar eru starfsræktar á sviðinu og þar vinna 2.351 starfsmenn. Heildarútgjöld Reykjavíkurborgar til starfssemi sviðsins námu 15.7% af heildarútgjöldum borgarinnar.