Borgarstræti og bæjartorg

Oddvitar aðskilnaðarsinna í Katalóníu vita ekki hvað skal til bragðs taka. Hvernig vinna þeir úr niðurstöðum kosninga gærdagsins? Ný umbrot á Spáni verða Spánverjum og Katalónum þung í skauti.

\"Spænska vandamálið\" er nú fullskapað. Það verður forsíðurfrétt blaða líkt og Norður-Kórea og Sýrland. Minningar um hrakfallafortíð þrumir í hugum fólks á Spáni. Og vekja aftur efa um að spænsku þjóðinni takist að víkja úr vegi þeim hindrunum sem tefja för hennar í heimi nútímans.  

Munu stjórnmálaskýrendur á Spáni trega spennutak Frankó og falangista sem héldu Spáni í harðri greip?

Hver veit.

Óvissan grúfir yfir.

Spánverjar verða sjálfir að uppræta sitt angistarböl sem nú þjáir þjóðina. Eru þeir þess megnugir?

[email protected]