\"Ég skipti ekki oft skapi en viðurkenni að það fauk hressilega í mig við að lesa þessa frétt í morgun. Svona gerir maður ekki. Það hefur verið skýr sýn og stefna borgarinnar að engum sé vísað úr matarröðinni, hvorki vegna efnahags né annarra ástæðna.\"
Þetta skrifar Dagur B. Eggertsson á fésbók sína í tilefni af því af því að ungum nema af erlendum uppruna við Fellaskóla var vísað úr pizzuveislu í boði skólans í gær, á öskudegi, þar eð hann væri ekki í mataráskrift.
Degi er mjög brugðið: \"Ég tek þetta sérstaklega nærri mér því Fellaskóli hefur verið í stórsókn undanfarin ár og ég er mjög stoltur af því starfi og árangri sem starfsfólk og stjórnendur, nemendur og fjölskyldur þeirra hafa skilað.\"
Hann segir að landsmenn eigi að skapa samfélag fyrir alla og þar sem allir séu með: \" Það er sérstaklega mikilvægt í skólunum. Ef þetta er vafamál í einhvers huga þá eigum við að hnykkja á því,\" skrifar Dagur og kveðst hafa leitað skýringa í morgun vegna þessa atviks frá Skóla- og frístundasviði.