Miðborginni spáð dauða fyrir fáum árum!

„Það er rétt að framundan er mikil og fjölbreytt uppbygging í Reykjavík, þar á meðal í miðborginni. Þetta er að flestu leyti hið besta mál þótt vitanlega felst í þessu áskoranir. Við þurfum sannarlega að vanda okkur og það erum við að gera. Ekki eru mörg ár síðan miðborginni var spáð dauða. Þær raddir heyrast nú ekki.“

Þetta segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í stöðuuppfærslu á fésbókarsíðu sinni í dag. Þar bregst hann við hvassri gagnrýni Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra sem gagnrýndi borgarskipulag í miðborg Reykjavíkur fyrr í morgun.

Dagur er ósammála ýmsu sem fram kemur í gagnrýni Sigmundar, svo sem að byggja hótel á Ingólfstorgi: „Þar vill hann nýtt hótel sem byggt yrði eftir gömlum teikningum af Hótel Íslandi, sem brann 1944. Ég held að við eigum að standa vörð um torgin okkar og gera þau líflegri og skemmtilegri. Það er nóg verið að byggja allt í kring.“

Hann segir efasemdir Sigmundar um uppbyggingu á Hörpu-reit vekja sérstaka athygli: „Þar voru ekki gömul hús heldur bensínstöð og Faxaskáli sem var úrelt birgðageymsla sem notuð var sem bílaplan undir það síðasta. Í dag eru þetta óbyggðir reitir eða bílastæði, að ógleymdri holunni við Hörpu. Ríki og Reykjavíkurborg seldu þessar lóðir sameiginlega og eru þær nú í höndum einkaaðla. Og þess má geta að Sigmundur Davíð sjálfur var um tíma varaformaður skipulagsráðs Reykjavíkur og auglýsti ákveðnar skipulagsbreytingar á Hörpu-reitunum, án þess að leggja til á þeim róttækar breytingar. Það hefur fátt breyst frá þeim tíma, nema til batnaðar, við höfum lagað skipulag gatnakerfisins og minnkað byggingarmagn.“

Að lokum segir Dagur að uppbygging í kringum Hörpu verði að öllum líkindum umdeild. Nauðsynlegt sé að standa vel að allri uppbyggingu í miðborginni og sýna metnað og virðingu fyrir því sem fyrir er. „Uppbyggingin í kringum Hörpu verður öruggulega ekki óumdeild, frekar en Harpan sjálf, en hún mun sannarlega kallast á við sögu staðarins einsog kostur er og borgin mun gera allt sem í hennar valdi stendur til að hún verði okkur öllum til sóma.“