Dagur botnar ekkert í sigmundi

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra vera spaugsaman hvað nýjustu hugmyndir hans um uppbyggingu Landspítalans varðar. Á nýrri færslu sinni á Facebook á borgarstjórinn mjög erfitt með að átta sig á nýjum hugmyndum forsætisráðherra um að flytja alla starfsemi Landspítalans á lóð Ríkisútvarpsins í Efstaleiti. Um aprílgabb hljóti að vera að ræða. Oddviti ríkisstjórnarinnar, sem vilji græða á sölu lóðar við Hringbraut til að byggja í Efstaleiti skorti þekkingu í þá veru að borgin eigi Landspítalalóðina, ekki ríkið. Hér reikni sjálfur forsætisráðherra, en það er raunar þvert á sam lýðveldisins stóra dæmið sjálft á servíettu.


Skrif Dags eru í tilefni af framkomnum hugmyndum Sigmundar Davíðs um að byggja upp starfsemi Landspítalans á nýjum stað, en það er raunar þvert á samþykkt hans sjálfs á Alþingi um uppbyggingu spítalans á lóðinni við Hringbraut. Dagur segir í færslu sinni: "Borgin á lóðirnar við Hringbraut en ekki ríkið og hefur látið þær endurgjaldslaust af hendi til spítalabyggingar skv lögum um heilbrigðisþjónustu og samningi frá 1975. Borgin endurheimtir þær ef þarna á ekki að vera spítali. Þá stendur eftir hugmyndin um að selja Barnaspítalann, Kvennadeildina og Geðdeildina og breyta í hótel. Sannfærandi? Nei, við skulum vona að þetta sé gabb, og að heilbrigðis- og fjármálaráðherra séu að fylgja eftir einróma samþykkt Alþingis (þmt forsætisráðherra) um að hefja þegar byggingu Landspítala við Hringbraut - sem raunar tæplega milljarður rennur til á þessu ári. Bygging spítalans er löngu tímabær og þjóðarskömm hvernig komið er í húsnæðismálum þessa hjarta í heilbrigðiskerfi landsmanna allra."