Borgarstjóra brugðið: byssu miðað á dag á vef dv – „man ekki eftir neinu svona“

„... Ábyrgðarhluti að lyfta einhverju sem gæti skilist þannig eins og það sé sjálfsagt eða venjulegur hlutur.“

Þetta segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í samtali við Vísi. DV birti samsetta  mynd af Degi þar sem sjá má mann vopnaðan riffli miða honum á höfuð borgarstjóra. Myndin hefur nú verið fjarlægð. Fréttin var byggð á umræðum úr Stjórnmálaspjallinu á Facebook um að Dagur hefði mætt á fund með Mike Pencew, varaforseta Bandaríkjanna, í gær á hjóli. Fannst mörgum sem tóku þátt í umræðunum að það væri óviðeigandi hjá borgarstjóranum. Á Stjórnmálaspjallinu voru þessi ummæli meðal annars látin falla:

„Hvar er riffillinn núna?“

\"\"

DV birti frétt um umræðurnar og samsetta mynd. Blaðamaður DV segir að myndin hafi verið unnin í fljótfærni og væri ekki við hæfi. Tekin hefði verið ákvörðun um að fjarlægja hana tveimur tímum síðar.

Vísir ræddi við Dag B. Eggertsson sem sagði:

„Mér var mjög brugðið að sjá þetta, satt best að segja, þó að maður sé ýmsu vanur, sérstaklega undanfarið, frá DV þegar kemur að borgarmálunum, þá man ég ekki eftir neinu svona.“