Borgarstarfsmaður segir Vigdísi stjórnlausa: „Það var hávaði í henni“

Helga Björg Ragnarsdóttir, starfsmaður á mannauðs- og starfsumhverfissviði Reykjavíkurborgar, segir að Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, hafi ofsótt sig og gert líf sitt ömurlegt. Helga Björg starfaði sem skrifstofustjóri skrifstofu borgarstjóra og borgarritara og sat á fundum með Vigdísi.

Þær hafa lengi átt í deilum sem rekja má til dóms þar sem áminning sem Helga Björg veitti undirmanni sínum var afturkölluð. Nýverið færði hún sig til í borgarkerfinu til að þurfa ekki lengur að starfa nálægt Vigdísi. Vigdís hefur alfarið hafnað ásökunum Helgu.

Sjá einnig: Hættir vegna á­rása Vig­dísar

Helga Björg rifjar upp í viðtali við Kjarnannþegar hún kom aftur til starfa fyrir borgina eftir að hafa farið í leyfi til að starfa fyrir Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra. Fundurinn átti sér stað árið 2019.

„Þegar kynningin var búin fór borgarfulltrúi Miðflokksins fram á að ég yrði fjarlægð af fundinum. Hún varð mjög æst og heimtaði að ég yrði rekin út af fundinum. Hún stóð upp, strunsaði fram og til baka og starði stöðugt á mig með frekar illu augnarráði. Hún virkaði eiginlega bara alveg stjórnlaus,“ segir Helga Björg. „Þetta var mjög óþægilegt og fólk var farið að færa sig til að vera á milli okkar í sjónlínu. Það var hávaði í henni og hún strunsaði út og skellti hurð. Þetta var bara alveg hrikalegt.“

Hún segir að næsti fundur hafi verið enn verri. „Þá varð Vigdís háværari og krafðist þess að formaður borgarráðs „henti“ mér út af fundinum annars myndi hún gera það sjálf. Hún gerði sig í rauninni líklega til þess en var stöðvuð. Hún ætlaði að draga mig út af fundinum. Þetta var ömurlegt.“

Helga Björg segir að Vigdís hafi alltaf snúið baki í sig „og bókaði á hverjum einasta fundi eitthvað rugl um mig. Ég reyndi að harka þetta af mér og ég hugsaði með mér að hún gæti ekki hagað sér svona að eilífu,“ segir hún.

„Ég fór í stutt veikindaleyfi vegna þess að ég var hætt að sofa og orðin langþreytt á því að eiga stöðugt yfir höfði mér ofsóknir þessarar konu og var eiginlega bara sárlasin og treysti mér ekki til baka í vinnu. Ég ákvað því að sækja um námsleyfi samhliða vinnu að jafnlaunamálum.“

Helga segir að Vigdís hafi ofsótt sig:

„Lífið er bara miklu betra þegar ég er ekki stöðugt að fást við ofsóknir af hálfu Vigdísar Hauksdóttur. Það er bara þannig.“