Borgarráð samþykkti í gær átta tillögur meirihluta borgarráðs um aðgerðir í húsnæðismálum á aukafundi sem minnihluti borgarráðs óskaði eftir. Þá var samþykkt tillaga áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands um að kanna væntingar og þarfir einstaklinga í húsnæðisvanda. Tillögum minnihlutans var flestum vísað til frekari skoðunar hjá Velferðarráði og fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar.
Tillögurnar eru hluti af aðgerðum meirihlutans í húsnæðismálum og lutu þær flestar að húsnæði til þeirra sem teljast utangarðs Meðal þess sem var samþykkt var að útvega fimm lóðir fyrir allt að 25 smáhýsi á árinu 2018, bæta þjónustu í samstarfi við ríkið um heilbrigðisþjónustu utangarðsfólks og að velferðarsvið ljúki tillögugerð um áframhaldandi uppbyggingu húsnæðis fyrir fólk sem telst utangarðs.
Nánar á
http://www.vb.is/frettir/tillogur-meirihluta-borgarrads-samthykktar/148825/