Borgarlína strax á næsta ári

Dag­ur B. Eggerts­son, borg­ar­stjóri, seg­ir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arn­ar á laug­ar­dag­inn meðal ann­ars snú­ast um borg­ar­línu, segir í frétt Morgunblaðsins en Dagur og Eyþór Arnalds oddviti Sjálfstæðisflokksins rökræddu málefni borgarinnar í blaðinu í dag.

Borgarlínan hefur verið kynnt á þann veg að borgin sjái ekki ein um fjármögnun heldur ríkissjóður líka og svo eru önnur sveitarfélög líka hluti af verkefninu, þau sem það vilja. Á vef Samfylkingarinnar segir að fara eigi þó í framkvæmdir við borgarlínu strax á næsta ári. Fjármögnun er þó enn óljós og fjármálaráðherra hefur ekki talað fyrir verkefninu.

Eyþór segist telja hugmynd um borgarlínu fyrir 70 til 100 milljarða varasama Miklu­braut í stokk fyr­ir 20-30 millj­arða séu „vara­sam­ar” á þann hátt að „ef menn eru að bíða eft­ir stóra verk­efn­inu þá klára þeir ekki mál­in á skyn­sam­leg­an hátt á meðan”, segir hann í viðtalinu.

Dagur segir afturámóti: Ég held að hún sé ekki mjög um­deild. Ég held að hún sé eitt­hvað um­deild í póli­tík­inni en ég held að þessi umræða hafi skilað því að það er mjög breið samstaða meðal fólks, al­veg þvert á flokka um allt höfuðborg­ar­svæðið, um að þetta sé framtíðin.“