\"Ég er ekki mikið fyrir að opna mig en ég ætla núna að stíga langt út fyrir þægindarammann og þakka því fólki sem hefur hjálpað mér og öðrum með hugrekki sínu og aflétt þeirri þöggun sem hefur hvílt yfir kynferðisofbeldi og afleiðingum þess.\"
Með þessum orðum byrjar Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, annar borgarfulltrúi Framsóknarflokksins í Reykjavík fésbókarfærslu sína í dag, en þar fjallar hún um reynslu sína af því að hafa verið nauðgað í barnæsku.
\"Ég er þakklát þeim sem hafa stigið fram og viðurkennt að hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi. Það hefur hjálpað mörgum. Það hefur hjálpað mér,\" skrifar hún áfram og segir sína sögu í færslunnI. \"Mér hefur verið nauðgað og ég hef átt við áfallastreituröskun að stríða. Ég þekki ekki þann sem nauðgaði mér. Hann bjó í húsinu við hliðina á vinkonum mínum þegar ég var barn.\"
Guðfinna Jóhanna segir að það sé erfitt að stíga fram og segja frá einhverju sem hún hafi falið svo lengi, en það sé líka erfitt að halda því leyndu: \"Ég viðurkenni það fúslega að það að viðurkenna að hafa verið nauðgað og setja þessa færslu hér er eitt það erfiðasta sem ég hef gert en samt ekki jafn erfitt og að hafa lifað með afleiðingum þess í áratugi,\" skrifar hún ennfremur og bendir á að áfallastreituröskun hafi mikil áhrif á daglegt líf þeirra sem eru haldnir henni og því sé nauðsynlegt að opna umræðuna um hana: \" Kvíðinn, reiðin, óttinn, skömmin, martraðirnar, endurupplifunin, þráhyggjan, feluleikurinn við að brynja sig svo enginn viti hvað maður hefur gengið í gegnum, dagarnir sem maður hefur þurft að tala sjálfan sig í gegnum daginn til að komast af, félagsfælnin, vonleysið, vörnin, myrkfælnin og allt hitt sem fylgir er erfitt að lifa með og getur bitnað á mörgum enda fylgir slíkri vanlíðan oft hegðun sem enginn skilur en er í raun öskur á hjálp. Því er mikilvægt að opna umræðuna um afleiðingar kynferðisofbeldis og aðstoða þá sem hafa lent í kynferðisofbeldi,\" skrifar borgarfulltrúinn á fésbók sína í dag.
Guðfinna er lengst til vinstri á myndinni hér að ofan með stallsystrum sínum í Framsókn í borginni.