Borgarfulltrúi bitinn: „ég er ekki illa haldin. ég lifi þetta af.“

Líf Magneudóttir sem er borgarfulltrúi Vinstri grænna. Líf sem býr í Vesturbænum greinir frá því í samtali við Vísi að hún hafi verið bitinn af lúsmý heima hjá sér. Segir Líf að klárt mál að um lúsmý sé að ræða.

Þá hafa fleiri íbúar í Vesturbænum greint frá því að þeir hafi verið bitnir af flugunum og hafa íbúar áhyggjur af því að óværan sé búin að setjast að í hverfinu og jafnvel fleiri stöðum á höfuðborgarsvæðinu.

Aðalheiður Ámundadóttir blaðamaður á Fréttablaðinu greindi til að mynd frá því að hún hefði verið bitin illa en Aðalheiður er búsett í miðbæ Reykjavíkur. Líf segir jafnframt við Vísi að hún finni til með öllum þeim sem lendi í flugunum. Hún segir að lokum:

„Ég er ekki illa haldin. Ég lifi þetta af.“