Borgaralaun eru eina skynsemin. Á það hafa margir hagfræðingar og samfélagsrýnar bent. Í samfélagi okkar þarf alltaf færri og færri vinnustundir í samfélagi þar sem framleiðsla, þjónusta, verslun og dreifing verður sífellt sjálfvirkari og vélvæddari.”
Þetta segir Salvör Gissurardóttir, aðstoðarprófessor við Háskóla Íslands í athugasemd við frétt á eyjan.is þar sem sagði af hæðnisskotinni gagnrýni forsætisráðherra í ræðu sem hann flutti á Viðskiptaþingi en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fór þá hörðum orðum um tillögu Pírata að skoða hvort Borgaralaun séu skynsamleg leið til að auka jöfnuð.
Sigmundur Davíð gerði afar lítið úr hugmyndinni í ræðu sinni. Hann taldi að ríkið hefði engin efni á borgaralaunum. Salvör er á öðru máli og bendir m.a. á að róbotar muni æ-í auknum mæli leysa mannshendur af hólmi eins og fjallað var um í frétt hringbrautar í gær. Ekki sé hægt að jafna lífskjör mneð vinnu sem ekki sé til lengur, að mati Salvarar. Má vísa til þess að fjölgun starfa sem ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir eru einkum verksmiðjustörf sem spáð er að láti undan gervigreind og róbótum.
“Skoðum aðeins hvernig borgaralaun gætu virkað. Núna er haldið uppi vinnu í sumum byggðum með því t.d. að úthluta útgerðarmönnum aukakvóta til að ráða landverkafólk til að beita fyrir sig í landi. Þetta er tilbúin vinna, atvinnubótavinna og landverkafólk fær bara vinnu vegna þess að ríkið úthlutar útgerðarmanninum leyfi til að veiða meira ef hann hefur fólk í svoleiðis vinnu. Er svona gervivinnusköpun nauðsynleg og skynsamleg? Er ekki betra að landverkafólk fái bara borgaralaun til að búa á stöðunum? Sama má segja um byggðina í Grímsey. Þar fengu útgerðarmenn bæði byggðakvóta og svo línuívilnun og það hefur nokkuð verið í fjölmiðlum hvernig útgerðarmenn þar fóru með ungt verkafólk. Er það svona samfélag sem við viljum? Þar sem þeir sem þegar eiga mikið og hafa mikil völd eru settir í lykilaðstöðu við að skaffa þeim sem ekki hafa vinnu störf? Væri ekki miklu skynsamlegri leið í byggðastefnu að byrja borgaralaun með því að innleiða þau í brothættum byggðum? Er það ekki skynsamlegasta byggðastefnan?” Spyr Salvör.
Uppfært: Hringbraut biðst velvirðingar á að Salvör Gissuradóttir var sögð Nordal þegar fréttin var fyrst birt. Er Salvör Nordal beðin afsökunar á þeim mistökum.