Í Kvennaráðum ræddu þau Kári Eyþórsson ráðgjafi, Ágústa Ósk Óskarsdóttir, meistaranemi í fjölskylduráðgjafi og Ragnheiður Eiríksdóttir um framhjáhald og afleiðingar þess og var Ragnheiður hörð á því að best væri að leggja ekki spilin á borðin nema algjöra nauðsyn bæri til því refsingin gæti orðið hörð. „Auðvitað er það rosalega erfitt með þetta skilorð sem framhjáhaldarinn er settur á. Svo ég held því fram að ef þú ætlar að halda áfram í sambandi þá eigirðu bara að grjóthalda kjafti.
Þátturinn Kvennaráð verður endursýndur á Hringbraut klukkan 17:30 í dag og hægt er að horfa á hann á Hringbraut.is með því að smella hér: