Borga 20.000 fyrir kíló af kobe-kjöti

Íslendingar hafa keypt upp þær birgðir sem fluttar voru inn af svo kölluðu Kobe-kjöti en um ræðir nautakjöt af japönsku kyni þar sem nautin eru alin á bjór og úrvalsfæði undir klassískri tónlist.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Haft er eftir sölustjóra O. Johnson og Kaaber að kjötið sé uppselt en kílóbitinn kostar 12.000-20.000 krónur. Mest ásókn hefur verið í dýrari bitana.

Morgunblaðið rifjar upp að Kobe-kjöt hafi fyrst borist til landsins bóluárið 2007 en svo virðist sem eftirspurnin nú jafnvel toppi góðærisbraginn þá.

Enn er þó ekki vitað til þess að Íslendingar hyggist snæða gull um hátíðirnar í ár.