Borðleggjandi, þátturinn endursýndur

Nýjasta þáttaröðin á sjónvarpsstööinni Hringbraut, Borðleggjandi í umsjá Sirrýar fraus á skjánum í gærkvöld vegna tæknilegra mistaka og verður þátturinn endursýndur við fyrsta tækifæri af þeim sökum, svo sem nánar verður auglýst síðar.

Hlutaðeigandi sem fram komu í þættinum eru beðnir afsökunar á mistökunum sem rekja má til bilunar í útsendingartölvu.

Borðeiggjandi verða annars á dagskrá Hringbrautar á föstudagskvöldum, en þar mun sjónvarpskonan Sirrý leiða landsmenn í allan sannleika um borðsiði og veislukúnstir.

Sirrý og Steingrímur Þórðarson myndatökumaður vinna þættina í samstarfi við Margréti Rósu Einarsdóttur framreiðslumeistara og staðarhaldara í Iðnó: \"Þetta eru stuttir og fræðandi þættir sem gefa innsýn inn í það hvað er góð þjónusta,\" segir Sirrý og kveðst reyna að svara mörgum spurningum í þessum þáttum: Hvaða kröfur getur fólk gert um þjónustustig þegar farið er fínt út að borða? Hvernig veitir maður góða þjónustu þegar veisla er haldin í heimahúsi?

Í fyrsta þættinum er farið er í heimsókn í Menntaskólann í Kópavogi þar sem framreiðslunemar sýna listir sínar, en þar á bæ lærir fólk t.d. borðskreytingar, að flambera, umhella víni, dekka borð og veita góða þjónustu.

Ungir leikarar setja svo á svið hvernig á ekki að bera sig að og hvernig þjónn á ekki að koma fram. 

\"Þættirnir eru líflegir og ríkulega myndskreyttir,\" segir Sirrý full tilhlökkunar og bendir á að Margrét Rósa, alvön manneskjan gefi góð ráð um veislur í heimahúsi: Hvenær á að bjóða gestum? Hvað á að áætla mikið magn af víni? Hvað skiptir mestu máli til að gestir upplifi góðar móttökur?

Einnig er spáð í hvernig best er að bera sig að á hlaðborði, hvernig halda má tækifærisræðu. Og mælt er með ýmsum góðum veitingastöðum sem bjóða upp á framúrskarandi faglega þjónustu. 

Þátturinn Borðleggjandi er með Facebooksíðu. Þeir sem fara inn á síðun og gera like og deila gætu haft heppnina með sér og fengið flott út að borða fyrir tvo á einum af glæsilegustu veitingastöðum borgarinnar, Hótel Holti.

Þættirnir Borðleggjandi eru frumsýndir klukkan 20:30 á föstudagskvöldum, en fyrsti þátturinn verður sem fyrr segir endursýndur í næstu viku og verður það kynnt sérstaklega þegar nær dregur..