Bónus var með lægsta verðið á matarkörfunni þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í lágvöruverðsverslunum og stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn mánudag. Matarkarfan var ódýrust hjá Bónus á 17.586 kr. en dýrust hjá Hagkaupum 20.960 kr. sem er 3.374 kr. verðmunur eða 19%.
Í tilkynningu frá eftirlitsmönnum sambandsins kemur fram að Krónan var með næst ódýrustu matarkörfuna en þar kostaði hún 17.870 kr. sem er 2% meira en hjá Bónus. Í Nettó kostaði hún 18.730 kr. sem er 7% dýrara en hjá Bónus og í Fjarðarkaupum kostaði hún 19.510 kr. sem er 11% dýrara en hjá Bónus.
Eins og komið hefur fram var matarkarfan dýrust hjá Hagkaupum 20.960 kr. en hún reyndist aðeins 115 kr. ódýrari hjá Iceland, en báðar verslanirnar voru 19% dýrari en karfan hjá Bónus. Verslunin Samkaup-Úrval var 18% dýrari en ódýrasta karfan og hjá Víði var karfan 16% dýrari en sú ódýrasta.
Af einstaka vörum í matarkörfunni var mestur verðmunur á ódýrustu fáanlegu bönunum sem voru dýrastir á 414 kr./kg. í Hagkaupum en ódýrastir á 189 kr./kg. hjá Bónus, verðmunurinn var 225 kr. eða 119%. Mikill verðmunur var einnig á lárviðarlaufum í poka frá G. Pálsson sem voru dýrust á 133 kr. hjá Víði en ódýrust á 98 kr. hjá Bónus, verðmunurinn var 35 kr. eða 36%.