Bónus lækkar verð á 600 vörum

Forrráðamenn lágvöruverðsverslunarinnar Bónus hafa lækkað verð á 600 vörutegundum sem þeir flytja inn sjálfir. Lækkunin kemur til af styrkingu krónunnar - og og er hún frá 2 til 5%.

Sem dæmi um einstaka vöruflokka má nefna að verð á frosnum innfluttum brauðum og frosnum kartöflum hefur farið niður um 5% og það sama á við um gæludýrafóður og mexíkóskan mat.

Verð vara frá Euroshopper sem eru algengar í hillum verslana Bónuss lækka um 2 til 3%.

Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss segir óljóst hvort verð á innkendum mat muni lækka, en rætt hafi verið við birgja og mun framhaldið ráðast af því hvernig þeir ráða við launahækkanir sem nú hellast yfir atvinnulífið.