Bónus hefur hætt sölu á plastburðarpokum í verslunum sínum. Frá þessu er greint á Facebook síðu verslunarinnar.
Ákvörðun hefur verið tekin um að bjóða frekar upp á lífniðurbrjótanlega burðarpoka samkvæmt því sem segir í færslunni.
Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus sagði í samtali við Vísi að unnið hafi verið að því að hætta með plastpokana í eitt og hálft ár af umhverfissjónarmiðum.
Vinna hafi staðið yfir í að finna niðurbrjótanlegan poka sem stæðust kröfur neytanda, til dæmis varðandi styrk.
Guðmundur segir nýju pokana þó ekki vera í sama flokki og plastið en hvetur neytendur til þess að nýta sér fjölnotapoka frekar en einnota burðarpoka en Bónus hyggst gefa viðskiptavinum slíka poka næstu daga.
Nánar á
www.visir.is