Böndin berast að blatter

Víðir Sigurðsson íþróttablaðamaður á Morgunblaðinu segir Sepp Blatter  forseta FIFA í raun ekki hafa gefið neina skýringu á skyndilegri afsögn sinni í gær, en óneitanlega vakni grunur um að böndin séu farin að berast að honum í rannsókn FBI á spillingarmálum innan FIFA.


Þetta kemur fram í fréttaskýringarþættinum Heimsljósi, sem frumsýndur verður á Hringbraut í kvöld kl. 20:45, en þar verður ítarlega fjallað um hneykslismálin sem skekið hafa Alþjóðaknattspyrnusambandið og hvernig það er sagt hafa níðst á verkafólki víða um heim.


Víðir telur langt því frá að öll kurl séu komin til grafar, og að spillingarmálin sem nú hafi litið ljós séu aðeins toppurinn af ísjakanum.  Blatter sé því hvergi nærri sloppinn, og ómögulegt sé að vita hvað gerist næst í hrunadansi sambandsins.  Þó muni sjálfsagt fátt koma í veg fyrir að heimsmeistarkeppnin verði haldin í Rússlandi árið 2018, en það sé nú spurning með HM í Katar árið 2022 því rannsókn sé nú hafin á því hvernig úthlutunarferlið fór fram.  Lítil fótboltahefð sé í landinu og fótboltanum í flestum heimshlutum verði komið í uppnám þar sem halda verði mótið í desember í stað þess að vera með það að sumarlagi svo sem venja hefur verið.


Heimsljós er sem fyrr segir frumsýnt klukkan 20:45 í kvöld.