Bombardier vélin bilar ítrekað

Flugvél Flugfélags Íslands, á leið frá Reykjavík til Egilsstaða, var snúið við og henni lent aftur í Reykjavík eftir að bilun kom upp í vökvakerfi vélarinnar í gær. Frá þessu greinir visir.is.

Flugvélin er af gerðinni Bombardier Q-400 og er ný í flugflota félagsins. Til stendur að fá fleiri vélar af sömu gerð í innanlandsflugið sem og önnur verkefni.

Eins og Hringbraut greindi frá varð harkaleg lending á Keflavíkurflugvelli fyrir hálfum mánuði þegar vængbörð virkuðu ekki sem skyldi. Var vélinni lent í Keflavík en ekki í Reykjavík vegna öryggisráðstafana en Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri FÍ neitaði að um nauðlendingu hefði verið að ræða. Hann segir vegna atviksins í gær að bilunin í gær sé ekki bundin við þessa tegund véla. Bombardier vélarnar sem FÍ mun kaupa eru komnar nokkuð til ára sinna.

Í athugasemdum við frétt vísis má lesa margvíslegar áhyggjur farþega sem nota innanlandsflugið vegna þessara bilana. Bombardier vélarnar eru ekki nýjar og er vitað um flugfélög s.s. SAS sem höfnuðu að kaupa þær þótt ágreiningur sé um ástæður þess. Atvinnubílstjóri hjá Hópferðabílum Akureyrar spyr á vísi hvort þessar vélu séu “handónýtt rusl”? Þá staðhæfir Linda Hrönn Hlynsdóttir flugfarþegi að bilunin í gærkvöld sé ekki númer tvö heldur þrjú í sama mánuðinum. “Fyrsta skiptið var sunnudaginn 6.mars, þá átti hún að fara frá RVK-EGS kl 18 en endaði ekki betur en svo að okkur var tjáð að það væri vélarbilun og við fórum í loftið með FOKKER 50 tveimur tímum síðar! Aldrei mun ég fyrir mitt litla líf fljúga með fjölskyldu mína með þessari vél!”

Uppfært kl. 14.40: Töluverð röskun hefur orðið í innanlandsfluginu í dag vegna flugvélarinnar sem enn hefur ekki verið tekin í umferð eftir bilun gærdagsins eftir því sem fram hefur komið í upplýsingum frá FÍ.