Bólusetningarátak á austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu

Sóttvarnalæknir hefur boðað bólusetningarátak gegn mislingum á Austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu eftir að grunur vaknaði í gærkvöldi um fimmta mislingatilfellið á skömmum tíma. Eru forgangshópar, þ.e. allir óbólusettir og fæddir á bilinu 1. janúar 1970 til 1. september 2018 og einstaklingar útsettir fyrir mislingasmiti, hvattir til að þiggja bólusetningu við mislingum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni.

Sýni frá aðilanum sem er grunaður um að vera sá fimmti sem hefur smitast af milsingum hefur verið sent til rannsóknar, og er niðurstöðu að vænta síðdegis í dag. Hinn sýkti komst í snertingu við þann aðila sem kom með flugi til Egilsstaða þann 15. febrúar, greindist síðar með mislinga og smitaði þrjá aðra einstaklinga.

Forgangshópar hvattir til bólusetningar

Á fundi sóttvarnalæknis í morgun með Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA), Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) og Landspítala (LSH) var tekin ákvörðun um að hvetja eftirtalda forgangshópa á Austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu til að þiggja bólusetningu við mislingum:

  1. Allir sem eru óbólusettir og fæddir á bilinu 1. janúar 1970 – 1. september 2018 (6 mánaða – 49 ára).
  2. Þeir einstaklingar sem útsettir hafa verið fyrir mislingasmiti ásamt þeirra nánasta umgangshópi.

Eru þessir hópar hvattir til að mæta í bólusetningu sem fyrst, þ.e. frá og með deginum í dag. 

Hægt að fá bólusetningu strax

Boðið verður upp á opnar bólusetningar strax um helgina á Austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu fyrir þessa hópa og eru staðsetningar auglýstar á heimasíðum Heilbrigðisstofnunar Austurlands  og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins 
Þeir einstaklingar sem hafa verið bólusettir eða hafa fengið mislinga þurfa ekki frekari bólusetningu. 

Einstaklingar sem fæddir eru fyrir 1970 hafa langflestir fengið mislinga og eru því ekki í forgangi í bólusetningu. Einstaklingar sem eru með sögu um eina bólusetningu eru ekki í forgangi. Hægt verður að bjóða þeim bólusetningu síðar. Yngri en sex mánaða hafa ekki gagn af bólusetningu.

Almenningi er bent á að skoða bólusetningaskírteini sín varðandi skráðar bólusetningar. Einnig er hægt að hafa samband við netspjall heilsugæslunnar www.heilsuvera.is  Á vef Embættis landlæknis og heilsugæslunnar er einnig að finna upplýsingar.

Áfram eru veittar upplýsingar vegna mislinga í síma 1700.