Nú eru allmargir Íslendingar að gera sér ferð út í heim í sumar og eflaust nokkrir til Rússlands að fylgjast með strákunum okkar standa sig á HM. Segja má að mikið ævintýri sé framundan hjá þeim sem ætla að sitja í stúkunni og jú auðvitað þeim sem heima sitja í góðra vina hópi með fánana á lofti.
Hins vegar má ég til með að benda á að mælt er með bólusetningu fyrir Rússalandsheimsókn, vegna möguleika á stífkrampa, barnaveiki og mislingum. Margar bólusetningar \"renna út\" ef svo má að orði komast og til að mynda margar af bólusetningunum sem fólk fær á unga aldri verða úreldar í kringum 23 ára. Merkilegt nokk. Landlæknisembættið mælir með að fólk fari á svo til 10 ára fresti og \"fylli á tankinn\" og þá aðallega til að koma í veg fyrir barnaveiki og stífkrampa.
Lifrabólgur A og B eru algengari útí heimi en margan grunar. Lifrabólga A smitast auðveldlega með mat, skólpmenguðu vatni eða af saurmenguðum höndum einstaklinga sem eru með sjúkdóminn eða eru að jafna sig af honum. Lifrabólga B smitast ekki eins auðveldlega en engu að síður er veiran þrautseig og getur lifað í 7 daga fyrir utan líkama.
Ef þú átt leið út í heim í bráð þá mæli ég með því að klára lifrabólgu bólusetningarnar í leiðinni. Þá er það bara afgreitt og maður fer áhyggjulaus til útlanda á næstu misserum og árum.
Á heimasíðu landlæknis emættisins má finna ýtarlegri upplýsingar hér.
**Snædís**