Ég hef náð stjórn á ofvirkninni

Það má segja að handboltinn hafi bjargað mér frá því að verða fórnarlamb eigin óöryggis, segir Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handbolta sem er gestur Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamál á Hringbraut þessa vikuna.

Þar ræðir Björgvin Páll um erfiða æsku sína sem einkenndist af vanlíðan og brotinni sjálfsmynd sem gerði það að verkum að hegðunarerfiðleikar brutust út í skólanum með skelfilegum hætti. Og þegar hann, átta ára gamall, var kominn á Barna- og unglingageðdeildina, áttaði hann sig á því að nú væri annaðhvort að duga eða drepast; tapa fyrir sjálfum sér eða nýta meðfædda ofvirknina til góðs. Og það hefur honum tekist, altso að stýra ofvirkninni í leik og starfi, beita henni þar sem við á, en dempa hana að öðru leyti.

Og hann hefur heldur betur snúið vörn í sókn - og þakkar nú fyrir sig með sjáfboðaliðastarfi í Vinakoti þar sem hann hjálpar ungu fólki í vanda, en hann hefur einnig gengist samtökunum Pieta á hönd sem vinna gegn sjálfsakaða og sjálfsvígum.

Um líf sitt, innan vallar sem utan, talar hann af fádæma hispursleysi í áhugaverðu og opinskáu viðtali sem er endursýnt í dag og er einnig aðgengilegt á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.