Bolli sakar vg um hræsni: „segir eitt í stjórnarandstöðu og annað í ríkisstjórn“

Bolli Héðinsson, hagfræðingur og fyrrverandi efnahagsráðgjafi tekur Vinstri græna til bæna í grein í Fréttablaðinu í dag. Hann sakar Vinstri græna um tvískinnung og segir flokkinn vera tækifærissinna. Það hafi komið í ljós þegar umræður um þriðja orkupakkann áttu sér stað. Heldur Bolli fram að hefði Vg verið í stjórnarandstöðu hefðu þingmenn barist hatrammlega gegn honum. Bolli segir í grein í Fréttablaðinu í dag:

 „Þannig þarf ekki mikið innsæi eða þekkingu á íslenskum stjórnmálum til að átta sig á að Vinstri græn hefðu farið fram gegn orkupakkanum, með sömu heilögu vandlætingunni og sömu röksemdafærslu og Miðflokksmenn, ef ekki hefði svo viljað til að þau væru einmitt í ríkisstjórn núna. Vinstri græn er einfaldlega þannig flokkur sem segir eitt í stjórnarandstöðu og annað í ríkisstjórn.

Um það ber myndun núverandi ríkisstjórnarinnar órækt vitni, þegar Vinstri græn tóku meðvitaða ákvörðun um að fara í stjórn með flokkum sem tryggðu að þau þyrftu ekki að standa við kosningaloforð sín. T.d. loforð um hærra auðlindagjald í sjávarútvegi, sem þau höfðu síðan sérstaka forgöngu um að lækka, þvert á það sem þau höfðu boðað fyrir kosningar.“