Kristín Helga Gunnarsdóttir, formaður Rithöfundasambandsins, segir í nýju fréttabréfi til félagsmanna að rithöfundar fagni nú áfangasigri þar sem í fjárlagafrumvarpi þessa árs hækki greiðslur úr Bókasafnssjóði til höfunda í ríflega 70 milljónir á þessu fjárlagaári.
„Sjóðurinn hefur því hækkað úr 23 milljónum á einu og hálfu ári og þakka ég það reglubundnum fundum með mennta- og menningarmálaráðherra og embættismönnum, ásamt viðræðum við þingmenn og aðra áhrifamenn.“
Þá kemur fram að bóksala gekk vonum framar á árinu sem var að líða, þrátt fyrir hækkun virðisaukaskatts. Mikil gróska er í handritaskrifum fyrir útvarp og sjónvarp ef marka má fjölda umsókna sem bárust í leiklistarsjóð Þorsteins Ö. Stephensen hjá RÚV fyrir áramót.
Einnig segir Kristín Helga, nú þegar margir fjargviðrast yfir listamannalaunum, að virðisaukaskattur á bækur dekki þó öll ritlaun höfunda.