Bókmenntakötturinn Nói, „þróunarstjóri Forlagsins“, er látinn á þrettánda aldursári. Nói er mörgum rithöfundum og bókaunnendum kunnur en hann var fastur gestur á skrifstofu bókaútgáfunnar í 11 ár og fékk titilinn „þróunarstjóri Forlagsins“.
Jóhann Páll Valdimarsson, stofnandi JPV-útgáfu og fyrrum útgefandi Forlagsins, greindi frá fregnunum á Facebook-síðu sinni.
„Það hryggir mig innilega að tilkynna andlát Nóa. Hann dó í morgun eftir að hafa lent í slysi í nótt. Nói var stórbrotinn köttur, algjör nagli en undurviðkvæmur undir niðri. Hann skilur eftir stórt tóm í hjarta okkar í fjölskyldunni og reyndar fleiri. Nú verðum við að reyna að fylla tómið með yndislegum minningum,“ skrifar Jóhann Páll.
Forlagið tilkynnti einnig um andlátið á Facebook en Nói var gjarnan kallaður þróunarstjóri Forlagsins, svo náinn var hann starfsfólki og rithöfundum útgáfunnar.
„Elsku Nói, þróunarstjóri Forlagsins, kvaddi okkur í dag. Hann er búinn að vera með okkur í 11 ár og upp á hvern einasta dag tók hann fyrirtækið út, kannaði birgðastöðuna, velti fyrir sér handritum og bókakápum, losaði okkur við penna og teygjur og sá um að streitan færi ekki með okkur á álagstímum. Hans verður sárt saknað.“