Bókahornið í kvöld: akureyri heimsótt

Bókahornið sem er á dagskrá Hringbrautar í kvöld er ekki tekið upp á sínum vanalega stað í Eymundsson Austurstræti heldur leggja þeir Sigmundur Ernir umsjármaður og Björn Sigurðsson myndatökumaður land undir fót og koma sér fyrir í Eymundsson Akureyri.

Og menningarbærinn Akureyri lifnar heldur betur við í þættinum, en þar er rætt við Brynhildi Þórarinsdóttur barnabókahöfund, Stefán Þór Sæmundsson ljóðskáld, Arnar Má Arngrímsson unglingabókahöfund og loks Braga Bergmann sem var að senda frá sér bráðfjöruga limrubók.

Þetta er næstsíðasti þátturinn í seríunni að þessu sinni, sá tólfti og síðasti verður sýndur í næstu viku, en svo verður þráðurinn tekinn upp að nýju í september þegar von er á bókaflóðinu mikla.