Bókabúðir að breytast í lundabúðir

Sala á íslenskum bókum sem ætlaðar eru erlendum ferðamönnum hefur ekki aukist á sama tíma og fjöldi ferðafólks hér á landi hefur tvöfaldast á innan við hálfum áratug.

Bókaútgefendur telja að skýringuna megi helst rekja til þess mikla úrvals sem nú sé til að alls konar vörum sem ætlaðar séu ferðafólki, en framboð af listmunum, minjagripum og margskonar hönnun hefur aukist gríðarlega á síðustu árum.

Bóksalar hafa tekið mið af þessari þróun. Bókabúðir á Íslandi eru fyrir vikið  í auknum mæli farnir að minna á minjagripaverslanir þar sem alls kyns glingur og heilu rekkarnir af lopapeysum taka æ meira pláss í búðunum - á kostnað bóka.