ohemian Rhapsody, kvikmyndin þar sem ferill bresku hljómsveitarinnar Queen og söngvarans Freddie Mercury er rakinn, er orðin söluhæsta mynd sinnar tegundar í sögunni. Aldrei hefur nein kvikmynd, þar sem sjónum er beint að ferli tónlistarmanns eða hljómsveitar, halað inn jafn miklu en það er Deadline sem greinir frá.
Þann 12. desember síðastliðinn námu tekjur myndarinnar tæplega 609 milljónum Bandaríkjadala á heimsvísu, jafnvirði um 75,4 milljarða íslenskra króna. Raunar má segja að myndin hafi slegið metið á hraða ofurhetjunnar Hvell-Geira (Flash Gordon) sem Queen söng svo eftirminnilega um. Sagan um bandarísku bófarappsveitina N.W.A., Straight Outta Compton, átti metið fyrir. Sú hafði selt fyrir 202 milljónir dala, jafnvirði 25 milljarða.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/lifid/bohemian-rhapsody-slaer-oell-soelumet-i-sinum-flokki