Bogi: gylfi þarf að vanda sig - „félagið vel í stakk búið til að takast á við krefjandi aðstæður

Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair Group segir að eðlilegra hefði verið af Gylfa Zoëga, nefndarmanni í peningastefnunefnd, að leita upplýsinga hjá Icelandair Group í stað þess að láta „ógætileg“ ummæli falla um stöðu félagsins á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í gærmorgun.

„Mig langar sérstaklega að beina athygli ykkar að þessu stóra flugfélagi sem að við byggjum svo mikið á. Hvað er að gerast þar? Ef þið reiknið fram í tímann, hvenær verður eigið fé þar komið á hættulegt stig,“ spurði Gylfi á fundinum.

Segir Bogi ummæli Gylfa einkar ógætileg í samtali við Fréttablaðið og að hann ásamt öðrum sem fjalla um málefni ferðaþjónustunnar beri mikla ábyrgð og verði að vanda málflutning sinn. Þá segir Bogi að ólíkt því sem hagfræðiprófessorinn sagði að hvað lausafé og eigið fé varðar, standi Icelandair vel.

Greinir Bogi frá því að Gylfi hafi ekki falast eftir upplýsingum um stöðu Icelandair fyrir fundinn en að það hefði verið hið eðlilega. Segir hann félagið ávallt stefna að því að búa ætíð að sterkri lausa- og eiginfjárstöðu.

„Við fylgjum þessari stefnu markvisst og í lok júní vorum við með tæplega 30 milljarða króna í lausafé, að meðtöldum óádregnum lánalínum, og yfir 50 milljarða í eigið fé. Félagið er því vel í stakk búið til að takast á við krefjandi aðstæður,“ segir Bogi við Fréttablaðið.