Bogi þarf að greiða meðlag aftur í tímann þrátt fyrir forsjá: „Ekkert annað að misnotkun á lögunum“

Bogi Hallgrímsson þarf að greiða barnsmóður sinni meðlag aftur í tímann, þrátt fyrir að barn þeirra hafi verið í sameiginlegri forsjá þeirra beggja frá árinu 2013 og greiðslur frá honum vegna framfærslu barnsins. Héraðsdómur hefur dæmt hann til að 884.975 krónur vegna gjaldfallins meðlags. Barnsmóðirin gerði kröfu um 3 milljónir.

Það er ekkert í kerfinu sem grípur fólk í okkar stöðu, hvergi á leiðinni er eitthvað sem stoppar af þetta óréttlæti,“ segir Bryndís Rán Birgisdóttir, eiginkona Boga, í færslu á Facebook. „Alls staðar löbbuðum við á veggi og svörin sem við fengum yfirleitt á þá leið að svona eru jú bara lögin. Skiptir þá engu sú augljósa staðreynd að barnið hafði allt frá sambúðarslitum verið í jafnri umgengni við móður og föður og öllum kostnaði skipt á milli beggja foreldra.“

Bryndís segir þetta óskiljanlegt. „„Við höfum aldrei og munum líklega aldrei fá að vita af hverju barnsmóðirin lagði upp í þessa vegferð,“ segir hún. „Aldrei hefur verið hægt að sýna fram á að við höfum ekki staðið við okkar skuldbindingar, fyrir utan þá staðreynd að Bogi hefur ekki greitt meðlag síðan þau skildu í árslok 2013. Vissulega er það satt en ekki af því að Bogi sveikst undan skyldum sínum, það var bara samið um annað fyrirkomulag. Barnsmóðirin hafði á hvaða tímapunkti sem er frá því að sambúðaslitapappírar voru undirritaðir til að krefjast meðlags. En hún beið í 7 ár og krafði okkur þá um milljónir.“

Hún segir að aðeins lögfræðingarnir hafi grætt á þessu. „Hér græddu lögfræðingar, enginn annar,“ segir Bryndís. „Ofbeldi lögheimilisforeldris er löngu orðið þekkt í okkar samfélagi og birtingarmyndin oftast tálmun og/eða fjárkúgun. Á meðan þessar glufur eru í kerfinu þá mun alltaf vera til fólk sem notfærir sér það sem er ekkert annað að misnotkun á lögunum. Réttast væri að þessi misnotkun væri refsiverð en í staðinn samþykkir kerfið það. Er ekki löngu orðið tímabært að stöðva þessa tegund af ofbeldi?“