Bogi Ágústsson, einn ástsælasti fréttamaður landsins er kominn með COVID-19. Frá þessu greinir hann í stuttri færslu á Facebook-síðu sinni í kvöld.
„Þessi flytur ekki fréttir í kvöld eins og til stóð,“ skrifar Bogi sem lætur almenning vita um fjarveru sína frá skjánum.
Bogi bætir við litlu gríni, og segir að eigin sannfæring um að hann væri ónæmur fyrir veirunni skæðu sé greinilega uppspuni. „Sannfæring hans um að hann væri ónæmur reyndist bull og vitleysa.“