Bogi myndi fara fyrstur um borð: „ég er alveg tilbúinn til þess, ekki spurning“

Bogi Nils Bogason hefur starfað hjá Icelandair Group í rúm tíu ár en nýlega settist hann í stól forstjóra, eða í desember síðastliðnum. Áður gegndi hann starfi framkvæmdastjóra. Bogi er í ítarlegu viðtali við Viðskiptablaðið þar sem hann ræðir um Icelandair og nýja stefnu félagsins. Segir Bogi að bjart sé framundan en að mörgu sé að huga.

Í viðtalinu ræddi Bogi um þau vandræði sem Boeing hefur skapað flugfélögum víða um heim. Þar er Icelandair ekki undanskilið eftir að kyrrsetja þurfti 737 MAX vélarnar. Bogi segir:

„Þetta verkefni snýst um að styrkja félagið til lengri tíma og hluti af því er að skoða hvaða flotasamsetning muni henta framtíðarstefnu og þróun félagsins best. Við höfum áður skoðað Airbus og árið 2012, þegar við gengum frá pöntunum á Max-vélunum, vorum við nálægt því að skrifa undir við Airbus. Núna erum við skoða þessa þrjá kosti mjög alvarlega. Þrátt fyrir stöðuna varðandi Max-vélarnar í dag, sem er vissulega krefjandi til skamms tíma, þá eru þetta frábærar vélar til lengri tíma litið fyrir stóran hluta af okkar leiðakerfi í Evrópu og austurströnd norður-Ameríku. Hins vegar vantar okkur vél í stað Boeing 757 sem flýgur lengra. Mögulega getur vél eins og Airbus 321Xlr verið sá kostur.“

Þá segir Bogi að félagið haldi vel utanum þann kostnað og tapaðar tekjur sem kyrrsetningin hefur valdið félaginu.

„Við erum í viðræðum við Boeing um að fá þetta tjón bætt en þeirra forgangsröð, sem og okkar, er að koma vélunum í þjónustu á ný. Ég held það sé mjög erfitt að segja til um það á þessu stigi hvað muni gerast og hvernig þetta fer nákvæmlega, hvað bæturnar verða miklar og í hvaða formi. Boeing er búið að eiga í miklu og löngu viðskiptasambandi við okkur og önnur flugfélög og vill eiga það viðskiptasamband áfram. Ég held það sé óhugsandi að Boeing muni ekki bæta flugfélögum skaðann en nákvæmlega hversu mikið og hvernig er erfitt að segja til um.“

Markmiðið er að koma vélunum aftur í loftið þann 15. september

„Við vinnum mjög náið með Boeing, öðrum flugfélögum og flugmálayfirvöldum en eins og önnur flugfélög setjum við öryggið alltaf í forgang sem og hagsmuni farþega.“

Þegar Bogi er spurður hvort hann hafi áhyggjur af því að farþegar vilji ekki stíga um borð í þessar vélar eftir það sem á undan er gengið svarar hann að vélarnar fari ekki í loftið nema búið sé að tryggja algjört öryggi þeirra. Þá kveðst Bogi vera tilbúinn til þess að fara með fyrsta fluginu eftir að vélarnar fara aftur í loftið.

„Ég er alveg tilbúinn til þess, ekki spurning. Það er gríðarlega vönduð og yfirgripsmikil vinna í gangi núna sem stýrt er af flugmálayfirvöldum í Bandaríkjunum og Evrópu, í samvinnu við Boeing og flugfélögin. Allir hafa hagsmuni farþega að leiðarljósi og vélarnar verða því ekki settar á loft með farþega nema yfirvöld meti það sem svo að vélarnar séu öruggar. Það mun taka tíma að vinna traust farþega á ný en ég tel að það muni ganga vel þegar málið hefur verið til lykta leitt.“