Bogi kom fjölskyldu til bjargar: „haldið þið að það eigi að vera snyrta sig hérna á miðri götunni?“

„Happy ending. Lofaði að láta þá sem fylgdust með röltinu um miðbæ Reykjavíkur vita hvernig ferðalagið endaði. Hér má sjá lokin á ferðalagi andamömmu með þrjá unga frá höfninni.“

Þetta segir fréttamaðurinn Bogi Ágústsson sem birti líklega fallegasta og skemmtilegasta myndskeið dagsins á Facebook. Þar má sjá Boga bjarga andafjölkyldu og fylgja henni frá höfninni, yfir Mýrargötu, Tryggvagötu, Póthússtræti, Kirkjutorg og Templarasund. Endaði ferðalagið svo farsællega við tjörnina. Á meðan ferðalaginu stóð ræddi Bogi við endurnar og er útkoman skemmtilegt og fallegt myndskeið sem allir ættu að hafa gaman að.

Hjá gamla pósthúsinu má heyra Boga segja: „Halda áfram. Haldið þið að það eigi að vera snyrta sig hérna á miðri götunni, nei ekki að ræða það.“ Á einum stað segir Bogi: „Jæja, nú erum við alveg að vera komin. Þetta er búið að vera langt og mikið ferðalag.“ Á öðrum stað segir Bogi: „Ekkert inn í Iðnó, bara beint niður á tjörnina.“ Og þegar endurnar loks náðu á áfangastað eftir langan göngutúr má heyra Boga segja: „Og kominn heim. Bless bless. Á ekki að segja takk fyrir fylgdina.“

Hér má sjá ferðalagið hjá andamömmu með þrjá unga frá höfninni. Fyrra myndskeiðið er rúmar níu mínútur en það síðara um mínúta, en þar má sjá þegar endurnar komast á leiðarenda.