Íslendingar ferðast nú um landið sitt sem aldrei fyrr. Óhætt er að fullyrða að einn af vinsælli ferðamannastöðum landsins séu Geosea - Sjóböðin við Húsavík.
Sjónvarpsmaðurinn Bogi Ágústsson deildi þessari skemmtilegu mynd úr böðunum á Facebook-síðu sinni nú fyrir stundu en þar má sjá sjónvarpsstjörnuna ásamt vopnabróður sínum, Ólafi Þ. Harðarssyni. Þeir félagarnir hafa marga hildina háð sem samherjar í kosningavökum Ríkisútvarpsins hin síðari ár, nú síðast í nýafstöðnum forsetakosningum.
Þótt að góður vinskapur sé með þeim félögum þá var það ekki svo að baðferðin hefði verið skipulögð.
„Staðreyndin er sú að fundum okkar prófessorsins og frú Hjördísar bar saman fyrir hreina tilviljun. Við ræddum hvorki stjórnmál né fótbolta, heldur ferðalög um Ísland og vorum sammála um að fréttir af okri í ferðaþjónustu væru mjög orðum auknar,“ skrifaði Bogi við færsluna.