Vefhólfið Kvikan á Hringbraut.is hefur boðið landsmönnum að segja álit sitt á Stefáni Jóni Hafstein sem forsetaframbjóðanda. Þeir sem hafa tekið þátt eru flestir jákvæðir.
Í gær kom fram á Hringbraut að Stefán Jón hefði hleypt af stokkunum átaki þar sem umræða um forsetaembættið er sett í öndvegi. Stefán Jón horfir sem frambjóðandi til Bessastaða ef hann fær stuðning. Hann segir þó skipta mestu að skapa umræðu um hvernig embætti og hvernig forseta þjóðin vilji eins og fram kemur hér.
15 höfðu á hádegi í dag sagt skoðun sína á Kvikunni á Hringbraut þegar spurt var hvort Stefán Jón yrði góður forseti. Um tveir þriðju voru þá jákvæðir gagnvart honum sem kandídat samkvæmt svörunum. Meðal þeirra sem tjá skoðun sína eru húsvíski ritstjórinn Jóhannes Sigurjónsson. Hann segir ljóst að Stefán Jón fái sitt atkvæði ef hann fari fram. Margir taka í svipaðan streng t.d. kennarinn Stefán Erlendsson sem segir: „Frambærilegur í alla staði - margsigldur, prýðilega menntaður í besta skilningi þess orðs, býr að dýrmætri og fjölþættri reynslu, er hugsandi, ritfær og vel máli farinn....og auk þess myndarlegur á velli!“
Sumir segja þó þvert nei og fram kemur hjá Rut Pétursdóttur að fréttamaðurinn Bogi Ágústsson sé virtur út um allan heim og að hann myndi fá atkvæði hennar ef hann byði sig fram. Ingvi Már Guðnason segir að betra væri að hafa „ópólitískan“ forseta og vísar þar væntanlega til fyrrum trúnaðarstarfa Stefáns Jóns innan Samfylkingarinnar.
Lesa má ummæli fólks hér