Fraktvél frá Bláfugli af gerðinni Boeing 737 rann til á akbraut í morgun þegar vélin var að keyra að flugvélastæði á Keflavíkurflugvelli.
Vélin lenti rétt fyrir klukkan átta í morgun, um fimm til sex mínútum eftir að vélin lenti fór nefhjólið út af akbrautinni.Vélin var að koma frá East Midlands Airport í Bretlandi. Tveir flugmenn voru í vélinni en þá sakaði ekki.
Ekki hafa fengist upplýsingar hvers vegna flugvélin rann út af akbrautinni né hversu miklar skemmdir kunna að vera á nefhjóli en hluti afturhjólabúnaðar vélarinnar lenti einnig utan brautar. Rannsakendur frá rannsóknarnefnd samgönguslysa voru mættir á staðinn í morgun og vettvangsrannsókn stendur yfir.