Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness mætti til Lindu Blöndal og í nýjasta Þjóðbrautarþáttinn sem frumsýnddur var í gærkvöld, en þar segir hann nýjan meirihluta á aðalþingi ASÍ hafa fleira fram að færa til að bæta kjör hinna lægst launuðu en hugmyndir um verkföll. Þátturinn er endursýndur í dag og endir sjáanlegur á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.
Ekki hægt að vera með heilalömun!
Ræða Eiðs Atla Axelsonar, 14 ára vakti mikla athygli í fyrr mánuðinum þegar hann steig í pontu á málþingi Öryrkjabandalagsins.
Eiður lýsti því hvernig það er að vera fatlaður í almennum grunnskóla, í skóla án aðgreiningar. Eiður fæddist með hjartagalla, fór tveggja daga gamall í hjartaþræðingu til Bandaríkjanna og er greindur með CP, eða Cerebral Palsy, sem er þekkt hreyfihömlun barna – en Eiður Atli hefur líka greinst á einhverfurófi.
Eiður, sem verður 14 í sumar mætir til Lindu í Þjóðbraut ásamt Agnesi Veroniku Hauksdóttur móður sinni.
Enn vantar heilbrigðisstefnu
Birgir Jakobsson, landlæknir og senn aðstoðarmaður Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra ræðir alvarlega ábendingar í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar á hvernig kaupum ríkisins á heilbrigðisþjónustu er háttað. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur hjá ASÍ og fyrrverandi formaður velferðarnefndar Alþingis fer yfir málið með Birgi.
Flytur grínið út
Ari Eldjárn kemur í Þjóðbraut. Hann er farinn að halda uppistand í útlöndum, gekk fádæma vel á Edinborgarhátíðinni fyrir ekki svo löngu. Nú er Ari kominn með umboðsmann ytra og heldur uppstand á hátíð í Soho í London og dvelur svo í mánuð í Ástralíu við sömu iðju. Hópur hans Mið-Ísland munu í millitíðinni koma fram í Háskólabíói til að flytja prógram sitt sem sýnt er vanalega í Þjóðleikhúskjallaranum.