Boðsgestir fylgdu afmælisbarninu til grafar

Hulda Þórhallsdóttir var borin til grafar í gær, á hundrað ára afmæli sínu. Samkvæmt heimildum Hringbrautar var búið að bjóða stórum hópi fólks í afmælisveisluna, var fjölskylda hennar komin langt að, þar á meðal frá útlöndum til að fagna deginum með Huldu. Úr því varð ekki, en Hulda lést 4. júlí síðastliðinn á dval­ar­heim­il­inu Hvammi á Húsa­vík.

Athöfnin fór fram frá Húsavíkurkirkju í gær. Hulda átti heima í einu fallegasta húsi bæjarins, Árholti. Þar hefur fólk búið í 130 ár. Hulda flutti til Húsavíkur árið 1937. Hún var gift Jónasi Eg­ils­syni og eignuðust þau sex börn. Samkvæmt Morgunblaðinu í dag er ekki vitað til þess að annar Íslendingur hafi verið borinn til grafar á 100 ára afmæli sínu.