Landssamband bakarameistara hefur hannað Lýðveldisköku í samstarfi við forsætisráðuneytið í tilefni af 75 ára afmæli lýðveldisins. Boðið verður upp á kökuna í miðbæ Reykjavíkur og verður hún 75 metrar á lengd eða sem samsvarar einni Hallgrímskirkju. Lýðveldiskakan er þriggja botna mjúk súkkulaðikaka með karamellu- rjómaostakremi og marsípani.
Hátíðardagskrá á vegum Alþingis og forsætisráðuneytisins hefst á Austurvelli klukkan 11.00. Forseti Íslands leggur blómsveig að styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli, Lúðrasveitin Svanur flytur nokkur lög, Hamrahlíðarkórinn syngur og fjallkonan flytur ávarp. Að lokinni athöfn á Austurvelli verður gengið fylktu liði að kirkjugarðinum við Suðurgötu þar sem Dóra Björt Guðjónsdóttir, forseti borgarstjórnar, leggur blómsveig á leiði Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar Einarsdóttur.
Skrúðgöngur fara frá Hallgrímskirkju og Hagatorgi stundvíslega klukkan 13.00 þar sem lúðrasveitir ganga í broddi fylkingar. Í Hljómskálagarðinum verða skátarnir með leiktæki fyrir gesti og er frítt í tækin. Boðið verður upp á sýningu og kennslu í kvistbolta eða Quidditch sem margir þekkja úr kvikmyndunum um Harry Potter. Þá munu kraftakonur keppa um titilinn Stálkona Íslands, Sirkus Íslands verður með skemmtiatriði, Stangaveiðifélag Íslands kennir flugukast og boðið verður upp á hestasýningu. Í Ráðhúsi Reykjavíkur verður svo boðið upp á harmonikkuball þar sem gestir geta bæði notið tónlistarinnar og dansað. Fyrir yngstu börnin verður Brúðubíllinn í Hljómskálagarðinum og Skoppa og Skrítla verða í Hörpu.
Stórtónleikar hefjast svo klukkan 14.00 á sviðinu í Hljómskálagarðinum þar sem fram koma meðal annarra Herra Hnetusmjör og Huginn, Friðrik Dór, Bríet og GDRN, Emmsjé Gauti & Aron Can ásamt fleirum. Tónleikunum lýkur klukkan 17.00.