Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og samgönguráðherra boðaði stórsókn í vegamálum í ávarpi sínu á flokksþingi Framsóknarmanna á Gullhömrum í dag.
Strax á þessu ári verði ráðist í stórsókn á brýnum framkvæmdum í þessu sviði sem ekki hafi verið gert ráð fyrir í áætlun 2018. Formaðurinn sagði að fjármagn úr bönkunum yrði nýtt til að byggja upp vegakerfið: \"Fyrir kosningar lögðum við áherslu á að nýta fjármuni úr fjármálafyrirtækjunum til innviða uppbyggingar. Það var skrifað í stjórnarsáttmálann. Við stöndum við það loforð. Við ætlum að nýta fjármagn frá bönkunum til að byggja upp vegakerfið,“ sagði Sigurður Ingi í ræðu sinni.
Í sáttmála ríkisstjórnarinnar segir að hraða eigi uppbyggingu í vegamálum: \"Vegakerfið krefst risavaxinna fjármuna því það er víða í molum,\" sagði formaðurinn enn fremur á fjölmennum fundi framsóknarmanna í dag.