Skúli Mogensen, forstjóri WOW air segir félagið hafa burði til að stórlækka flugmiðaverð til Ameríku og nefnir þar tugi prósenta, en félagið stefnir að flugi til Los Angeles og San Fransisco á næsta ári.
Félagið hefur notið velgengni að undanförnu eins og fram kemur í samtali Morgunblaðsins við Skúla í dag, en þar segir að sætanýting félagsins í október hafi verið 92% sem bendi til þess að hlutdeild þess í auknum straumi ferðamanna til landsins hafi aukist: \"Ég tel það vera talsvert magnað að hafa nánast tvöfaldað sætaframboð á milli ára, en ná samt sem áður þessari nýtingu,\" segir hann við blaðið.
Hann segir félagið vel í stakk búið til að takast á hendur Ameríkuflugið, en nýir og breyttir tímar hjálpi þar til: \"Þetta hefði verið ógjörningur fyrir ekki svo löngu. En með tilkomu netsins er magnað að sjá hvað okkur hefur tekist vel til að kynna okkur út um allan heim með bara þessa einu litlu skrifstofu á Íslandi sem er auðvitað lykilatriði í því hvað við getum boðið lág fargjöld,\" segir Skúli í Morgunblaðinu í dag.