Boðar stórlækkað verð á interneti

Fjarskiptafyrirtækið Hringdu, sem fagnar 5 ára afmæli sínu undir lok vikunnar, boðar stórlækkað verð á interneti á næstunni í krafti þess góða árangurs sem forráðamenn þess segjast hafa náð á markaðnum.

Í tilkynningu frá félaginu í tilefni af þessum nýju áformum segir að stofnendur Hringdu hafi séð \"tækifæri á fákeppnismarkaði\" hér á landi og ákveðið að hefja sölu á fjarskiptaþjónustu á betra verði en keppinautar þess hafi boðið upp á. Fyrirtækið hafi verið fyrst allra til að bjóða upp á internet með ótakmörkuðu gagnamagni og nú sé stefnan sett á stórlækkað verð á interneti.

“Það er mikil ástæða til að fagna enda var 2015 okkar besta ár frá upphafi og vöxtur gengið framar vonum. Við ætlum að nýta þann árangur til að gera vel við viðskiptavini okkar og kynnum í dag stórlækkað verð á interneti um ljósleiðara” segir Játvarður Jökull Ingvarsson, framkvæmdastjóri og stofnandi Hringdu og bætir við að frá og með deginum í dag sé hægt að panta sér ótakmarkað net fyrir einungis 3.990 kr.

Játvarður segir árið hafa farið vel af stað og samkeppnin aukist mikið á þessu fyrstu mánuðum. Hringdu var eina fyrirtækið sem bauð upp á ótakmarkað gagnamagn árið 2014 en í dag bjóða 4 af 6 helstu fjarskiptafyrirtækjum landsins ótakmarkaða þjónustuleið: “Okkur finnst frábært að fleiri hafi fetað í sömu fótspor. Við viljum vera leiðandi í fjarskiptaþjónustu og munum á næstunni kynna nýjungar fyrir bæði heimasíma og farsíma og í haust mun heimilum með ljósleiðara bjóðast 1 Gbit tenging -- sem er tífalt hraðari en dæmigerð heimatenging”.