Boðar lækkun virðisaukaskatts

Hugmynd forsætisráðherra verður kynnt nánar og þá líkast til undir lok vikunnar þó tími sé naumur. Þegar þetta er skrifað voru þær ekki komna fram.

Undir lok þessarar viku hyggst rikisstjórnin kynna hugmyndir að lækkun hins svokallaða almenna þreps virðisaukaskattskerfisins. Í dag stendur það i 24%.

Um lækkun tryggingagjalds er það að segja að það á að lækka á þessu kjörtímabili. \"En við ætlum ekki að fara út í skattalækkanir á röngum tíma.\"

Þær aðgerðir sagði forsætisráðherra þarf að tímasetja með hliðsjón af því sem gerist á vinnumarkaði og að öðru leyti í opinberum fjármálum sagði ráðherrann í ræðu á aðalfundi SA-Samtaka atvinnulífsins.

Bjarni Benediktsson ítrekaði að í hans huga væri ljóst að slíkt svigrúm myndi fást á því kjörtímabili sem nú stendur yfir. Atvinnulifið hefur lengi haft það sem grunnstefnu að knýja fram lækkun á tryggingagjaldi. 

 

Nánar www.sa.is